Tuesday, March 30, 2010

30. mars

Veður: NA 5m/s og 5,3 stiga frost
Ferðatími: 21:57 mín
Meðalhraði: 23,6 km/klst

Nú var ég á ferðinni fyrr en venjulega, uppúr kl. hálf átta. Þá virðast fleiri vera á ferðinni hjólandi en hálftíma síðar. Gaman að vita hvort einhverjar talningatölur liggja fyrir.
Ég sé að það er fundur um reiðhjólið, besta farartæki borgarinnar, í kvöld á vegum samtaka um bíllausan lífsstíl. Væri gaman að kíkja. Maður er búinn að vera svona frekar einangraður í þessu, svona fyrir utan vinnufélaga og nánustu ættingja.
Annars skráði ég mig í íslenska fjallahjólaklúbbinn um daginn. Kemur í ljós hvort maður verður eitthvað virkur í því starfi eða bara fljóti með og verði hluti af tölfræði. Þarna er reyndar möguleiki á þokkalegum afsláttum sem er full þörf á í dýrtíðinni. Rekstur á reiðhjóli getur orðið nokkur ef það er eitthvað notað.

1 comment:

  1. Gaman að sjá þetta hjá þér. Hlýtur að vera ánægjulegt að líta yfir farinn veg og sjá hve ótrúlega duglegur maður er. Þú ert alveg til fyrirmyndar :)

    ReplyDelete