Maí var hagstæður til hjólreiða að mestu. Fremur kaldur en oftast þurr. Hjólaði eina 17 daga. Þetta voru einhverjir 350 km. Skrópaði 1 dag. Það er nú í lagi. Þá eru þetta komnir einhverjir 1150 km á árinu til og frá vinnu.
Búinn að hjóla vel yfir 1600 km á Secteur hjólinu. Það kemur bara vel út, á þó eftir að prófa mjórri dekk.
Monday, June 1, 2015
Thursday, April 30, 2015
30. apríl
Ja mars var nú bara þannig að þá hjólaði ég fjóra daga eða 80 km og var því ekkert að færa það inn. Enda var mars með eindæmum leiðinlegur hjólamánuður flesta daga.
Hins vegar var apríl alveg þokkalegur þó kaldur væri. Þá hjólaði ég 16 daga eða 320 km. Það eru þá sléttir 800 km á árinu, fyrstu fjóra mánuðina. Sennilega er þetta lakasta frammistaða mín síðan árið 2008. En, veturinn er búinn að vera með þeim leiðinlegr, það verður bara að segjast eins og er.
Hins vegar var apríl alveg þokkalegur þó kaldur væri. Þá hjólaði ég 16 daga eða 320 km. Það eru þá sléttir 800 km á árinu, fyrstu fjóra mánuðina. Sennilega er þetta lakasta frammistaða mín síðan árið 2008. En, veturinn er búinn að vera með þeim leiðinlegr, það verður bara að segjast eins og er.
Monday, March 2, 2015
2. mars 2015
Aftur frekar slakur mánuður þessi febrúar. Reyndar einn sá leiðinlegasti veðurfarlega séð í mínu minni. En þetta voru 220 km og 11 hjólaðir af 20. Þetta þarf nú að laga. Við erum sem sagt búin að hjóla 460 km á þessu ári hjólið og ég.
Tuesday, February 3, 2015
1. febrúar 2015
Janúarmánuður að baki. Ansi hreint misgóður til hjólreiða, snjór, vindur og frost, algengir veðurfarsþættir. Ég hjólaði einhverja 240 km í mánuðinum. Sleppti úr nokkrum dögum, eða alls 8 af 20. Það er 60% ástundun. Reynum að hífa það upp.
Tuesday, December 23, 2014
23. desember. 2930 + 180 = 3110
2930 + 180 = 3110
Samkvæmt bókahaldinu rétt slefa ég semsagt yfir 3100 km á árinu.
Það eru nokkrar meginástæður fyrir slakri ástundun:
Samkvæmt bókahaldinu rétt slefa ég semsagt yfir 3100 km á árinu.
Það eru nokkrar meginástæður fyrir slakri ástundun:
- Að eiga bíl. Valkosturinn að vera með bíl til umráða er meginástæðan. Ef bíll væri ekki valkostur þá væri ástundunin einfaldlega mun betri.
- Fjölskyldan. Þegar þarf að skutla eða sinna börnum á mismunandi tímum, oft á vinnutíma, þá getur verið ansi stirt að vera hjólandi. Veikindi barna eru líka þáttur hér.
- Skóli og leikskóli. Talsvert um allskonar skipulags- og starfsdaga, foreldraviðtöl og uppákomur sem skapar óreglu í annars nokkuð vel mótaða rútínu. Foreldrar þurfa ósjaldan að "redda" börnunum. Þetta er sömuleiðis skutl og skrepp. Þægilegra að vera á bíl. Ekki óalgengt að foreldrar skipti með sér verkum yfir daginn, fyrir og eftir hádegi.
- Veður. Yfirleitt læt ég veður ekki hafa áhrif á mig en það verður að viðurkennast að á þessu ári hafa komið nokkrir dagar sem ég hef hreinlega sleppt því að hjóla vegna veðurs eða færðar, nema hvort tveggja sé.
Monday, December 1, 2014
1. desember
Hlýindamánuðurinn nóvember að baki. Annað eins vart upplifað af elstu mönnum. Hjólaði þá fáu daga sem hjólað var á racer, utan einn. Það þykja tíðindi að ekki sé meiri hálka í nóvember. Ógeðslega dimmt vegna snjóleysis. Kílómetratalan komin í 2930 sem er arfaslakt. Desember ekki mesti hjólamánuðurinn og byrjar með látum, stormi og fárviðri.
Friday, October 31, 2014
31. október
Veturinn minnti á sig í október. Nagladekkin komin undir 19. október sem er óvenju snemmt. Reyndi svo sem ekki mikið á þau nema einn dag á þessum tveimur vikum. Ástundunin datt enda niður seinnipart mánaðarins. Alls hjólað 13 daga af 23 sem er óvenju lélegt. 56% er alls ekki gott. En þetta eru 260 km. og heildarvegalengdin því komin í 2730 km.
Subscribe to:
Posts (Atom)