Wednesday, April 9, 2014
7. apríl
Það var sprungið á hjólinu þegar ég ætlaði heim og afturdekkið ónýtt eftir fimm vetra notkun. Þetta leysti togstreituna, hvort ætti nú að taka nagladekkin undan. Nú eru þau sumsé farin undan og hvílíkur léttir. Maður tekst svo bara á við þessa frostmorgna sem gætu verið framundan af yfirvegun.
Thursday, April 3, 2014
3. apríl
Marsmánuður var dálítið brokkgengur. Síðasta vikan fór í ferðalög þannig að þá var lítið hjólað. En þetta voru 15 dagar eins og í febrúar eða 300 km. Það eru þá 880 km á árinu so far. Ástundunin, eða þannig, er því 71% í mars.
Nú er hins vegar svo komið að snjór og klaki eru á brott í bili. Naglar því heldur til óþurftar en gagns. Til upprifjunar þá tók ég naglana undan 23. mars í fyrra. Hér með er því tekin sú ákvörðun, nema spáin verði eitthvað sérlega óhagstæð í kvöld, að taka bara nagladekkin undan.

Friday, February 28, 2014
28. febrúar
Dagarnir þennan mánuðinn voru 15 sem hjólað var til og frá vinnu. Það gerir 15/20 eða 75% og er akkúrat markmiðið sem ég setti. Af þessu voru tveir dagar sem hjólið var í viðgerð. En alls eru þetta 300 km sem er þá 580 km á árinu.
Gott að halda því til haga að 14. febrúar byrjaði ég að hjóla með nýjan krans að aftan, ný tannhjól að framan, nýja keðju og nýjan framgaffal. Gott að fylgjast með hvað keðjan endist.
En vorið er greinilega á leiðinni, klakinn minnkar dag frá degi og sandurinn kemur sífellt betur í ljós.

Friday, January 31, 2014
31. janúar 2014
Þetta árið er ég að spá í að taka saman eftir hvern mánuð hversu marga daga ég hjóla til og frá vinnu af virkum dögum. Og líka að halda nokkurn veginn utanum vegalengdir.
En sem sagt, janúar er 14/22, þ.e.a.s. ég hjólaði 14 daga af 22. Það er ekki nema 64%. Markmiðið á að vera a.m.k. 3/4 eða 75%. Þarna spila inn í veikindi barna, foreldraviðtöl og eitthvað svona smálegt. En það tínist til.
Í kílómetrum talið eru þetta 280 km. Miðað við að maður hjóli 11 mánuði á ári þá myndu það gera 3080 km á ári. Það er ekki ásættanlegt markmið af minni hálfu.
Ég verð samt að játa það að heimferðin í gær var ein sú erfiðasta hingað til á nokkurra ára ferli. Mikill og klesstur snjór, hvergi búið að moka og hált undir. Hjólið var orðið 25 kíló þegar heim var komið, bremsurnar óvirkar og gírskiptingin með takmarkaða virkni. En þetta hafðist.

Friday, December 27, 2013
Desember 2013
Ekki hefur hann nú verið mánuður stórræða þessi desembermánuður. Ég hef hjólað eina 7 daga til og frá vinnu. Ýmist sleppt því vegna veðurs eða einhverra snúninga. Þetta gerir um 3.100 km á árinu. Ég hélt að markmiðið hefði verið 3.500 km en það var víst ekki nema 3.000 þannig að því markmiði er náð. Held hins vegar að setja ætti markið hærra á næsta ári. Sjáum aðeins til með það.
Monday, December 2, 2013
Nóvember
Nóvember var þokkalegur hvað ástundun varðar. Hjólað 15 daga af 21. Það gerir þá um 300 km þennan mánuðinn. Þá er maður kominn í 2960 km á árinu. En veðrið hefur verið frekar leiðinlegt, talsverður vindur og miklar umhleypingar. Óvenju algengar vestanstæðar áttir.
Tuesday, November 5, 2013
31. október
Ekki var nú október mánuður stórra afreka á hjólasviðinu. Aðeins 11 virkir dagar hjólað eða 220 km. Þá er ég kominn í 2.660 km það sem af er ári. Það þýðir að maður slefar kannski yfir 3.000 km á árinu.
Subscribe to:
Posts (Atom)