Friday, October 30, 2009
30. október
Ástandið enn við það sama. Náði ekki að gera við í gær svo strætó naut nærveru minnar. Tók 7:30 strætó heima og hann var pakkaður af framhaldsskólanemum. Það gladdi mitt sóthjarta.
Thursday, October 29, 2009
Wednesday, October 28, 2009
28. september - settur dagur
Veður: Miklu hlýrra en ég gerði ráð fyrir og var því of vel klæddur. Ég verð að fá nýjan hitamæli á eldhúsgluggann. Smá vindur, suðaustanstæður. Verður væntanlega meiri á heimleiðinni.
Tuesday, October 27, 2009
27. október
Veður: Enn er vorveður hér á höfuðborgarsvæðinu. Bara huggulegt að hjóla. Eingöngu birtustigið gefur vísbendingu um að nú sé skammdegið að ná yfirhöndinni.
Öryggi: Blikkandi fram- og afturljós reiðhjólanna gefur vísbendingar um hjólreiðamenn á ferð. Þeir sem ekki hafa slíkt á sínu hjóli eru hættulegir sjálfum sér og öðrum.
Myndataka hefur legið niðri um nokkurt skeið. Þar kemur einkum tvennt til. Annars vegar hef ég verið of latur til að hjóla lengri leiðir heim eða til vinnu og hins vegar eru birtuskilyrði til myndatöku ekki uppá það besta.

Monday, October 26, 2009
26. október
Veður: Það var bara uppá það besta, hægur norðan vindur og milt. Kannski 5-6 gráður. Örlítil úrkoma, sem er bara hressandi.
Öryggi: Myrkrið er orðið allsráðandi á morgnana og eins gott að fara sér hægt og gera ekki ráð fyrir að maður sjáist. Þannig er það bara.
Ég hef verið að spá í heyrnina sem hluta af öryggisnetinu og er nokkuð viss um að ef maður heyrir í umferðinni, er ekki með eitthvað í eyrunum, þá eru minni líkur á árekstri. Maður heyrir í bíl sem er á leiðinni, þó hann sjáist ekki. Ég held þetta sé ekki ímyndun.

Thursday, October 22, 2009
22. október - lýsing
Ok, ég fór á bíl í vinnuna í gær.
Veður: Lagði snemma af stað í morgun og var kominn niður í vinnu fyrir kl. 8. Veðrið var frábært, milt, hægur vindur og létt úrkoma.
Öryggi: Vegna þess hversu árla ég var á ferðinni þá gerði ég mér ljóst að taka þarf sérstaka umfjöllun um lýsingar á stígum. Þær þarf víða að laga en annarsstaðar eru þær í fínu standi. T.a.m. vantar lýsingu í brekkunni niður frá Álfabakka ofaní Elliðaárdal. Þar er ekki ein ljósapera. Hins vegar er um hættulegan kafla að ræða sem þarf að lýsa upp. Eins þarf að bæta lýsingu meðfram afreininni af Miklubraut í átt að Sprengisandi. Þar er hættuleg blindbeygja, sem reyndar er hægt að laga auðveldlega og mikil þörf á lýsingu.

Tuesday, October 20, 2009
20. október - popp eða rokk
Veður: Grænfáninn við Fífusali lá niður með fánastönginni í morgun. Það þótti mér gott vitni þess að ekki væri miklum vindi fyrir að fara. Enda var það raunin. Hins vegar var ansi kalt og skv Veðurstofunni í frostmarki. Ég held reyndar að suðaustanáttin hafi verið u.þ.b. komin í Salahverfinu en ennþá köld norðanátt í Elliðaárdal því þar var bara frost.
Ég skipti um lagalista á leiðinni, tók meira popp framyfir rokkið. Er ekki frá því að með þessu sé maður afslappaðri á hjólinu, ekki eins aggressívur.

Subscribe to:
Posts (Atom)