Hlýindamánuðurinn nóvember að baki. Annað eins vart upplifað af elstu mönnum. Hjólaði þá fáu daga sem hjólað var á racer, utan einn. Það þykja tíðindi að ekki sé meiri hálka í nóvember. Ógeðslega dimmt vegna snjóleysis. Kílómetratalan komin í 2930 sem er arfaslakt. Desember ekki mesti hjólamánuðurinn og byrjar með látum, stormi og fárviðri.
Monday, December 1, 2014
Friday, October 31, 2014
31. október
Veturinn minnti á sig í október. Nagladekkin komin undir 19. október sem er óvenju snemmt. Reyndi svo sem ekki mikið á þau nema einn dag á þessum tveimur vikum. Ástundunin datt enda niður seinnipart mánaðarins. Alls hjólað 13 daga af 23 sem er óvenju lélegt. 56% er alls ekki gott. En þetta eru 260 km. og heildarvegalengdin því komin í 2730 km.
Wednesday, October 1, 2014
September
Eigum við ekki að segja að september hafi verið svona í blautari kantinum. Allavega þurfti ég oft á tíðum að vinda fötin mín þegar komið var í hús. Og síðasti hlutinn var líka með ríflegum skammti af vindi. Svo er aðeins að kólna en ekki enn komin frostnótt eða morgunn.
Ég hjólaði 16 daga til og frá vinnu eða 320 km. Þá er maður kominn í 2.470 km. En annars sleppti ég því að hjóla þrjá daga, var aðra þrjá erlendis. 16 af 19 er 84% sem er alveg þokkalegt.
Ég hjólaði 16 daga til og frá vinnu eða 320 km. Þá er maður kominn í 2.470 km. En annars sleppti ég því að hjóla þrjá daga, var aðra þrjá erlendis. 16 af 19 er 84% sem er alveg þokkalegt.
Monday, September 1, 2014
Ágúst 2014
Ágústmánuður var fínn hjólamánuður. Hægur vindur (að langmestu leyti) og milt. Tveir morgnar held ég sem hitinn var innan við 10°C. Ég hjólaði 14 daga þennan mánuðinn sem samsvarar u.þ.b. 280 km. Fór reyndar nokkrum sinnum lengri leiðina í og úr vinnu. Þá er a.m.k. 2000 km markið komið í höfn og 150 km betur.
Wednesday, August 6, 2014
Júlí 2014
Eins og vænta mátti var lítið hjólað til og frá vinnu þennan mánuðinn. Alls voru það sjö dagar eða um 140 km. Það eru þá 1870 km. Þetta potast.
Tuesday, July 1, 2014
1. júlí og stefnir í sumarfrí
Hjólaði 10 daga í júní. Týpískt að maður hjóli minna bestu mánuði ársins en þá er líka meira um aðra hjólatúra. Þetta er þá komið í 1730 km á þessu ári, til og frá vinnu. Secteurinn að virka vel og meðalhraðinn eitthvað hærri en á Giant gamla. Gleðin líka meiri.
Júlí verður væntanlega rólegur og lítið verið í vinnunni.
Júlí verður væntanlega rólegur og lítið verið í vinnunni.
Monday, June 2, 2014
2. júní og nýtt hjól
Maímánuður var góður hjólamánuður. Veður milt og ekki mikill vindur. Virkilega gaman að hjóla á þessum árstíma með gróðurilm og flugur. Ég hjólaði 17 daga, sleppti þremur vegna einhverrar óreglu. Það er 85% ástundun. Alls hjólaði ég 350 km. Alls eru því komnir 1.530 km í körfuna til og frá vinnu þetta árið.
Svo má ekki gleyma því að ég keypti mér nýtt hjól, Specialized Secteur Sport Disc (sjá mynd). Assgoti bara fínt hjól og eykur gleðina, sem er nauðsynlegur fylgifiskur. Gamla hjólið hefur hlutverk sem utanvegarhjól, fjölskylduferðahjól og nagladekkjahjól þannig að það hefur hvergi nærri lokið sinni tilveru eftir 16 þús km notkun.

Subscribe to:
Posts (Atom)